Skilmálar

Upplýsingar

Vefverslunin Kamado Cito er rekin af Kvikk ehf. Kt. 500108-0100, Vsk.nr.: 100514, Vagnhöfða 5, 110 Reykjavík

Sími 5 200 600
Netfang
Facebook

 

Afgreiðsla og afhending pantana

Afgreiðslutími pantana er að öllu jafna 1-3 virkir dagar. Sé vara ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða varan endurgreidd sé þess óskað.

Viðskiptavinir á landsbyggðinni geta fengið vörur sendar heim með Íslandspósti og eru vörur að jafnaði póstlagðar næsta virka dag eftir pöntun. Kaupandi ber ábyrgð á að gefa upp rétt heimilisfang við pöntun. Hægt er að sækja pantanir til Kvikk Þjónustunnar, Vagnhöfða 5 110 Reykjavík. 

Opnunartímar: 
Mánudag til fimmtudaga 08:00 – 17:00
Föstudaga 08:00 - 16:00
Lokað um helgar.

Greiðsla og sendingarkostnaður

Hægt er að greiða með kredit- og debetkortum, American Express, Netgíró, peningum (ef vara er sótt) eða með millifærslu.

Ef greitt er með Netgíró ertu fluttur á örugga vefsíðu Netgíró þar sem greiðsla fer fram. Ef greitt er með kredit eða debetkortum ertu fluttur á örugga vefsíðu Borgunar. Greiðslur með kredit og debetkortum eiga sér stað í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi Borgunar þar sem kortaupplýsingar eru skráðar og greiðsla fer fram. Kvikk Þjónustan tekur því hvorki við né geymir kortaupplýsingar.

Netgíró býður upp á kortalaus viðskipti á netinu. Til að greiða með Netgíró þarftu að vera með virkan aðgang, hægt er að nýskrá sig á vefsíðu Netgíró. Þegar þú greiðir með Netgíró þarftu aðeins að slá inn kennitölu og lykilorð og þá er pöntunin frágengin. Reikningur vegna kaupanna kemur í heimabankann með gjalddaga eftir 14 daga og er hann vaxtalaus. Einnig býður Netgíró upp á raðgreiðslur vegna vörukaupa og er mögulegt að dreifa því á 2-12 mánuði (fer eftir upphæð kaupanna). Lágmarkskaup fyrir raðgreiðslur er 15.000 kr.

Vilji kaupandi greiða með millifærslu skal leggja inn á reikning Kvikk Þjónustunnar ehf. innan 24 klst. frá kaupum og senda kvittun úr heimabanka á kamadogrill@kamadogrill.is
Reikningsnúmer er 0331-26-051080 Kt: 500108-0100

Verð

Kamado Cito áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og að hætta við pantanir ef verð vörunnar er rangt skráð í vefverslun. Öll verð í vefverslun eru gefin upp með virðisaukaskatti.

Vöruskil

Skilaréttur er 14 dagar frá kaupum. Óskir þú eftir því að skila vöru skal hafa samband í tölvupósti á kamadogrill@kamadogrill.is Hægt er að skipta í aðra vöru, fá inneignarnótu eða fá vöruna endurgreidda með sama máta og greitt var fyrir hana. Athugið að ef greitt var fyrir vöruna með kreditkorti þá er eingöngu endurgreitt á sama kort. Sé greitt fyrir vöruna með Netgíró er annað hvort hægt að fá inneign eða fella niður kröfuna í heimabanka sé hún ógreidd.

Vöru fæst eingöngu skilað sé hún ónotuð og í upprunalegum óskemmdum umbúðum og ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil, þá er miðað við verð vörunnar samkvæmt reikningi.

Kaupandi ber ábyrgð á sendingum þar til hún hefur borist Kvikk Þjónustunni.

Gölluð vara

Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum sé þess krafist. Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á kamadogrill@kamadogrill.is með upplýsingum um galla vörunnar. Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

  • Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.Notkun á persónuupplýsingum

  • Sendingar úr kerfi Verslunar kunna að nota persónuupplýsingar, s.s. búsetu, aldur eða viðskiptasögu, til að útbúa viðeigandi skilaboð til meðlima síðunnar. Þessar upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila. Meðlimir vefverslunnarinnar geta ætíð afskráð sig og þannig neitað fyrirtækinu notkun á slíkum upplýsingum.

Fyrirvari

Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum.

Um pantanir sem eru sendar með Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Kamado Cito ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Kamado Cito til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu? Sendu okkur póst á kamadogrill@kamadogrill.is