Við kynnum FireBoard 2 DRIVE, nýjasta meðlim FireBoard fjölskyldunnar.
Einfalt í uppsetningu og tengist þráðlausa netinu þínu, Fireboard sýnir rauntíma hitastig í gegnum ský í app fyrir iPhone, Android og á vefsíðu.
FireBoard 2 er með 6 innganga fyrir hitanema sem sýna þér nákvæmar og áreiðanlegar hitabreytingar í mismunandi umhverfi.
FireBoard 2 státar af stórum LCD skjá sem getur sýnt frá öllum 6 hitanemum í einu.
Takkarnir á hliðinni flakka á milli skjástillinga, hvort þú viljir sjá 1 hitanema í einu eða fleiri. Tækið er með USB C tengi fyrir hleðslu og til að keyra viftuna í fullan hraða, það er vatnsþolið og er með allt að 30 tíma rafhlöðuendingu.
Á hliðinni á tækinu er útgangur fyrir DRIVE tæknina, en það er hitastjórnunarbúnaðurinn, 12v vifta er tengd við tækið og umhverfishita nemi er settur inn í grillið og sér þá tækið um að viðhalda þeim hita sem þú ákveður í grillinu.
Tækið notar innbyggðu rafhlöðuna til að keyra viftuna upp að 50% hraða, sem er nóg í lang flestum tilfellum og sérstaklega í Kamado grillum, til að nota viftuna á fullum hraða þarf að tengja USB hleðslu við tækið.
Athugið að viftan er seld sér.
FireBoard 2 er auðvelt í uppsetningu og notkun í gegnum FireBoard appið.
Gögn eru samstillt frá tækinu yfir í FireBoard skýið svo þú getur skoðað gömul og núverandi hitastig.
Tækið er tengt með Bluetooth og WiFi svo þú getur fengið viðvaranir og fylgst með hvar sem er.
- 6 inngangar fyrir hitanema
- 12v inngangur fyrir viftu
- LCD skjár
- WiFi
- Bluetooth 4.0 (BLE)
- FireBoard Ský þjónusta
- Alexa stuðningur
- Google assistant stuðningur
- Innbyggt Li-Ion batterý
- Stærð á tæki: 11.2cm x 7.1cm x 2.8cm
- Þyngd: 225g
Innifalið:
FireBoard FBX2 hitamælir
Hleðslutæki og snúra
Umhverfis hitanemi
Smella fyrir nema
Kjöt hitanemi x2
Leiðbeiningar