Flame Boss 500 hitastjórnunarbúnaður
Flame Boss 500 hitastjórnunarbúnaður
Flame Boss 500 hitastjórnunarbúnaður

Flame Boss 500 hitastjórnunarbúnaður

Venjulegt verð 59.800 kr Tilboð

Ef þú vilt grilla eða reykja án þess að þurfa hafa áhyggjur af hitanum í grillinu þá er Flame Boss 500 hitastjórnunarbúnaðurinn fyrir þig!
Stór LCD skjár er á tækinu og er hægt að fylgjast með hitanum í grillinu og allt að 3 kjötstykkjum í einu.

Þetta er nýtt tæki sem gefur þér möguleika á að stjórna hitanum í grillinu hvort sem þú ert með nettenginu eða ekki.

Þú getur skoðað graf af elduninni, fylgst með hitanum í grillinu og kjötinu og breytt hitastiginu í grillinu allt í gegnum síma, spjaldtölvu, tölvu eða á tækinu sjálfu.

Þú getur látið tækið lækka hitann í grillinu þegar kjötið hefur náð réttum kjarnhita til að halda kjötinu heitu.

Tækið lærir á grillið þitt svo það verður alltaf stöðugri hiti með tímanum og grillið fljótara að ná réttum hita.

Tækið lætur þig vita þegar kjötið er tilbúið eða tilbúið í næsta skerf í elduninni, þú velur annaðhvort ákveðinn kjarnhita eða tíma og þú færð skilaboð í símann þegar að því kemur.

Hitanemarnir eru platínum nemar af vönduðustu gerð, þola 250° hita
það fylgja með 2 nemar, einn fyrir kjöt og einn fyrir umhverfishita í grillinu.

Viftan í tækinu hefur breytilegan hraða, hún blæs á þeim hraða sem hún þarf til að ná og viðhalda þeim hita í grillinu sem þú velur.  

Ef hitinn í grillinu fellur skyndilega, til dæmis ef lokið er opnað þá slekkur tækið á viftunni sjálfkrafa svo bruninn í kolunum verði ekki of mikill.

Þetta tæki er Universal sem hægt er að nota á flest öll kolagrill og reykofna.